Mistök að mynda stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2007

 

Björgvin Guðmundsson skrifar kjallaragrein í DV í  dag um stjórnarsamvinnu Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks 2007 í tilefni af ræðu Ingibjargar Sólrúnar á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar sl. laugardag.

 Björgvin segir svo: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra ,sýndi mikið hugrekki er hún steig í ræðustól á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar sl. laugardag(17.apríl) til þess að játa mistök,er hún hefði gert.Ingibjörg Sólrún sagði,að hún hefði brugðist sjálfri sér,Samfylkingunni og kjósendum með því að fara í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum 2007 og starfa með þeim í stjórn í tæp 2 ár.Hún kvaðst ekki hafa gætt stefnumála Samfylkingarinnar nægilega vel í þessari stjórn og ekki heldur þeirra mála,er hún hefði lagt áherslu á í Borgarnesræðunni.

Vildi fá R-lista stjórn í landsmálum

Nokkru áður en umrædd ríkisstjórn var mynduð ritaði ég  blaðagrein undir fyrirsögninni:Er ekki röðin komin að R-lista stjórn í landsmálum? Þar leiddi ég rök að því, að Samfylkingin ætti að beita sér fyrir myndun félagshyggjustjórnar,Þ.e. ríkisstjórnar allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins.Ég taldi vonlaust,að Samfylkingin gæti komið fram nauðsynlegum breytingum á þjóðfélaginu í samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn og lagðist gegn því að fyrsta ríkisstjórn,sem Samfylkingin tæki þátt í væri ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum.Samfylkingin hefði jú verið stofnuð til höfuðs Sjálfstæðisflokknum.En rödd mín í blaðagreininni var eins og rödd hrópandans í eyðimörkinni.Menn töldu fljótvirkast að mynda stjórn með Sjálfstæðisflokknum.Forustumenn Samfylkingarinnar vildu ólmir komast í ríkisstjórn og meirihluti flokksmanna dansaði með.Það var eins og menn teldu,að Samfylkingin væri að missa af strætisvagninum.En menn sjá í dag eins og Ingibjörg Sólrún, að þetta voru mistök.Samfylkingin átti að halda fast við stefnumál sín og átti ekki að kvika frá stefnu sinni í kvótamálinu.Og í Borgarnesræðunni hreyfði Ingibjörg Sólrún ýmsum mikilvægum málum varðandi breytingar á íslensku þjóðfélagi,sem Samfylkingin hefði betur haldið við.

Stjórnin lagfærði kjör aldraðra og öryrkja 

Ég veit,að Samfylkingin reyndi að koma fram ýmsum mikilvægum stefnumálum sínum,þegar stjórnin með Sjálfstæðisflokknum var mynduð.T.d. voru sett ínn í stjórnarsáttmálann ágæt ákvæði um aðgerðir í málefnum aldraðra. Það var verk Ingibjargar Sólrúnar,að þessi ákvæði um bætt kjör aldraðra fóru inn í sáttmálann.Þar voru róttækari ákvæði um kjarabætur til handa öldruðum en í stjórnarsáttmála sjálfrar  "félagshyggjustjórnarinnar" sem nú situr að völdum. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Samfylkingar og VG eru engin ákvæði um að bæta eigi kjör aldraðra,ekki eitt einasta orð.Við samningu þess stjórnarsáttmála voru að verki menn,sem höfðu aðrar áherslur enda hefur þessi ríkisstjórn skert kjör aldraðra en ekki bætt þau.Þrátt fyrir allt lagfærði ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks nokkuð kjör eldri borgara og öryrkja.

Kvótamálinu var ítt út af borðinu

Það olli mörgum Samfylkingarmönnum miklum vonbrigðum að kvótamálinu var alveg ítt út af borðinu til þess að unnt væri að mynda stjórn með Sjálfstæðisflokknum.Þetta var eitt stærsta og mikilvægasta mál Samfylkingarinnar.Enda þótt ekki væri mikið rætt um þetta mál í aðdraganda kosninganna 2007 kusu margir Samfylkinguna út á stefnu hennar í kvótamálinu.Menn vildu innkalla veiðiheimildir á ákveðnu tímabili og taka gjald fyrir við endurúthlutun.

Völd má ekki kaupa hvaða verði sem er

Stjórnmálaflokkar eru vissulega í stjórnmálum til þess að ná völdum og koma stefnumálum sínum í framkvæmd.En þeir mega ekki kaupa völdin hvaða verði sem er.Stjórnarseta Samfylkingar 2007 var of dýru verði keypt.Það hefur Ingibjörg Sólrún séð og viðurkennt.Ég er sammála henni.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband