Spáð minni verðbólgu

Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,3% í apríl. Ef sú verður raunin mun verðbólga lækka úr 8,5% í 8,3% og telur greiningin raunar líklegt að þar með sé hafið hjöðnunarskeið í verðbólguþróun sem standa muni næsta kastið.

 

„Síðustu leifar útsöluloka munu væntanlega hafa hvað mest áhrif til hækkunar vísitölunnar nú, enda stilla margar verslanir þessa dagana út sumarvarningi á verði sem að fullu endurspeglar lágt gengi krónu. Samtals teljum við að þessi áhrif vegi til hækkunar VNV um tæpan fjórðung úr prósentustigi," segir í Morgunkorni greiningarinnar.

 

„Af þessum áhrifum frátöldum eru fáar vísbendingar um verulega hækkun á flestum undirliðum vísitölunnar þennan mánuðinn. Áhrif af hægfara styrkingu krónu undanfarið hálft ár virðast þegar vera farin að koma fram í sumum þeirra liða sem næmastir eru fyrir gengisbreytingum, t.a.m. innfluttum matvörum. Þá gerum við ráð fyrir lítilsháttar lækkun á húsnæðislið vísitölunnar. Lítill hækkunarþrýstingur virðist einnig vera til staðar í innlendum vöru- og þjónustuliðum, enda mikill slaki á vinnumarkaði og hart barist um aðhaldssama viðskiptavini."( visir.is)

Lækkun verðbólgu úr  8,5% í 8,3% er ekki mikil lækkun en þó breyting í rétta  átt.Almenningi finnst miða lítið í átt að lægri verðbólgu og styrkari krónu.Vonandi fer þróunin að verða hraðari nú þegar AGS hefur afgreitt lánið til Íslands.

Björgvin Guðmundsson

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband