Þriðjudagur, 20. apríl 2010
Norðurlöndin lána Íslandi í tengslum við lán AGS
Okkar norrænu vinaþjóðir, Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð hafa samþykkt að veita íslenskum stjórnvöldum aðgang að næsta hluta lánafyrirgreiðslu að upphæð rúmlega 440 milljónir evra eða sem nemur 75 milljörðum kr. Þetta kemur fram í sameiginlegri fréttatilkynningu ríkjanna sem birt er á vef Reuters fréttaveitunnar.
Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að Norðurlöndin samþykkja lánveitinguna nú í kjölfar þess að stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur lokið annarri endurskoðun efnahagsáætlunar AGS og íslenskra stjórnvalda.
Um er að ræða annan hluta af fjórum en í það heila áætla Norðurlöndin að lána íslenskum stjórnvöldum allt að 1,8 milljaða evra. Í kjölfar annarrar endurskoðunar AGS á gjaldeyrisvaraforði Seðlabankans því von á að fá innspýtingu sem nemur allt að 95 milljörðum króna og er þá ótalið væntanlegt lán frá Póllandi að upphæð 9 milljarða kr sem enn hefur ekki hefur staðfest.(visir.is)
Þetta eru góðar fréttir.Vitað var,að Noregur ætlaði að lána okkur en nú hefur verið staðfest,að hin Norðurlöndin verða með í lánveitingum til Íslands samhliða láni AGS.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.