Þarf rannsóknarnefnd um sparisjóðina?

Rannsóknar­nefnd Alþingis telur að íslenska sparisjóðakerfið verðskuldi sérstaka athugun en að það sé Alþingis að taka ákvörðun slíka rannsókn. Ríkið tók yfir rekstur Byrs og Sparisjóðs Keflavíkur í fyrrakvöld.

„Þótt allar íslenskar fjármálastofnanir hafi orðið fyrir einhverjum skakkaföllum samhliða þeim áföllum sem gengu yfir fjármálamarkaði heimsins haustið 2008 eru vandamál sparisjóðakerfisins um margt sérstök," segir í skýrslunni. Vegna umfangs verkefnis nefndarinnar hafi ekki unnist tími til að taka þau vandamál til sérstakrar skoðunar.

Atli Gíslason, formaður þingnefndar sem fjallar um skýrsluna, segir nefndina hafa heimild til að ákveða framhaldsrannsókn. Engar ákvarðanir hafi þó verið teknar. Að sögn Atla standa vonir til að niðurstöður liggi fyrir í september.
Vilhjálmur Bjarnason, lektor og framkvæmdastjóri Félags fjárfesta, segir gefa auga leið að frekari rannsókna sé þörf. „Allir sparisjóðirnir eru í rúst. Eitthvað gerðist og auðvitað er ástæða til að rannsaka það," segir hann.
Jón G. Tómasson, stjórnarformaður SPRON á árunum 1976 til 2004, segist ekki geta tjáð sig um hvort eitthvað kunni að hafa farið aflaga hjá sjóðunum eftir hans formannssetu. Um það hafi hann enga vitneskju.

Jón segir ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um að heimila frjálsa sölu stofnfjárbréfa árið 2002 hins vegar hafa verið „arfavitlausa". Í framhaldinu gengu bréfin kaupum og sölum á margföldu nafnverði.

„Eftir að Fjármálaeftirlitið úrskurðaði að það mætti selja þessi bréf og lagaákvæði sem verið höfðu í gildi í meira en hundrað ár stæðust ekki stjórnarskrá, þá var fótunum kippt undan kerfinu. Þar tel ég hafa verið upphafið að endalokum sparisjóðanna."- (visir.is)

Það er sorglegt,að sparisjóðakerfið sé komið í rúst.Og vissulega þarf að rannsaka hvað gerðist.Sparisjóðirnir voru góðar og traustar stofnanir áður en græðgisvæðingin  greip þá og þeim var breytt í hlutafélög,sem gætu farið að braska með hlutabréf, Þá ætluðu allir að græða en þegar upp er staðið tapa allir.

 

Björgvin Guðmundsson 


 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband