Hundruð erlendra ferðamanna hafa afbókað hótel hér vegna eldgossins

Hundruð erlendra ferðamanna hafa afbókað gistingu á hótelum borgarinnar í apríl og maí vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Hótelstjórar eru uggandi og segja fólk helst óttast að verða innlyksa hér á landi.

Flugbannið undanfarna daga hefur nú þegar haft veruleg áhrif á íslenska ferðaþjónustu. Kristján Daníelsson, hótelstjóri á Hótel sögu, segir hundruð ferðamanna hafa afbókað gistingu á hótelinu í maí og apríl.          

„Það er óvissa og fólk er ekki kannski alveg tilbúið að ferðast ef það er ekki viss hvort það komist heim. Það hefur verið svolítið um afbókanir til skemmri tíma en ekki svo mikið yfir sumarið," segir Kristján.

Sömu sögu er að segja um önnur hótel í miðborginni, ferðamenn og ferðaskrifstofur hringja látlaust á hótelin og óska eftir upplýsingum um framhaldið.

„Margir eru að breyta ferðunum og seinka þeim. Við erum að vinna með innlendum og erlendum ferðaþjónustuaðilum og reyna að vinna úr óvissunni," segir Kristján.

Við þetta er að bæta að forsvarsmenn ferðaþjónustunnar sitja nú á fundi iðnaðarnefndar og ræða hvernig bregðast megi við fréttum erlendis af eldgosinu í Eyjafjallajökli. Skúli Helgason, formaður nefndarinnar, segir að landkynning sé eitt af því sem þurfi að skoða.
(visir,is)

Þetta eru afleitar fréttir. Við bundum miklar vonir við komu erlendra ferðamanna hingað í sumar.Við vonuðum að ferðamannaiðnaðurinn næði hámarki hér í sumar.Miklar bókanir gáfu góðar vonir í því efni.Yfirvöld munu reyna að auka kynningu til þess að vega upp á móti slæmri þróun.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Best er að gefa ferðaþjónustunni undanþágu frá gjaldeyrishöftunum.  Það virðist vera inni í myndinni fyrir 200 störf á Suðurnesjum. 

Hvað eru eiginlega mörg störf í húfi hjá ferðaþjónustunni?  Líklega eitthvað fleiri.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 26.4.2010 kl. 14:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband