Steingrímur J.:Eiga að velta því fyrir sér hvort þeir eigi að stíga til hliðar

Þetta fólk á að hugsa sinn gang mjög alvarlega og velta því fyrir sér hvort þeir séu ekki að gera sér og öðrum greiða með því að stíga til hliðar," sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, í viðtali í þættinum Íslandi í bítið í morgun þegar hann var spurður um háa styrki til einstakra stjórnmálamanna.

Mikill styr hefur staðið um háar styrkveitingar bankanna til Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, en hópur mótmælanda hafa mótmælt fyrir utan heimili hennar undanfarið og krafist afsagnar hennar vegna málsins. Þá hefur Guðlaugur Þór Þórðarson einnig verið gagnrýndur harðlega.

Steingrímur segir að dapurlegasti þáttur stjórnmálamanna hafi verið dýru prófkjörin og bendir á að það sé strax skömminni skárra þegar stjórnmálaflokkarnir sjái um kynningar á frambjóðendunum.

Steingrímur tók hinsvegar skýrt fram að það væri eðlismunur á upphæð styrkja sem stjórnmálamenn hafa fengið og nýtt til þess að kynna sig. Hann segir mikinn stigsmun vera á nokkrum tugum þúsunda og milljóna sem þeir safna persónulega.

„Fjársafnanir stjórnmálamanna í eigin nafni koma stjórnmálamönnum í eins mikið návígi við hagsmunatengsl og hugsast getur," sagði Steingrímur svo.(visir,is)

Ég er ekki sammmála Steingrími.Ég tel ekki að þeir stjórnmálamenn sem þáðu styrki meðan engar reglur giltu,þurfi að segja af sér. Það var annað umhverfi fyrir nokkrum árum.Það giltu þá engar reglur um styrki til stjórnmálamanna og flokka.Engar reglur voru því brotnar. En ef einhverjir telja að þeir hafi gert rangt siðferðilega verða þeir að gera það upp við sig hvort þeir segja af sér,

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband