Þriðjudagur, 4. maí 2010
Verðbólga næstmest á Íslandi
Í nýju yfirliti frá OECD um verðbólgu í aðildarlöndum samtakanna kemur fram að verðbólgan á Íslandi mældist næsthæst eða 8,5% í marsmánuði s.l. Það er aðeins Tyrkland sem býr við meiri verðbólgu en þar í landi mældist hún 9,6%.Næst á eftir Íslandi var verðbólgan mest í Ungverjalandi eða 6%.
Á heildina litið mældist verðbólgan innan OECD landanna 2,1% að meðaltali í mars. Þetta er nokkur hækkun milli mánaða því meðaltið var 1,9% í febrúar. OECD segir að hækkunin stafi aðallega af hækkunum á orkuverði sem hækkaði um 11,3% miðað við mars á síðasta ári.
Hvað orkuverðið varðar hækkaði það einnig næstmest á Íslandi á þessu tímabili eða um 30,8%. Mesta hækkun á orkuverði var í Grikklandi eða rúm 33%. Í þriðja sæti er síðan Noregur með orkuverðhækkun upp á 25,7%.(visir.is)
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.