Jóhanna gaf engin loforð um launahækkun Seðlabankastjóra

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir það vera dylgjur að hún hafi gefið fyrirheit um að laun seðlabankastjóra myndu hækka umfram það sem niðurstaða kjararáðs sagði til um.

Í fyrirspurnartíma á Alþingi sagði hún að formaður bankaráðs Seðlabankans hafi hvorki haft samráð við sig né fjármálaráðherra um tillögu sem hún lagði fram í bankaráði um 400 þúsund króna launahækkun bankastjórans. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Birkir J. Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, spurðu ráðherra út í málið á Alþingi í morgun. Sigurður Kári spurði jafnframt hvort forsætisráðherra hafi haft vitneskju um málið.

Lára V. Júlíusdóttir, formaður bankaráðsins, hefur sagt í fjölmiðlum að með tillögu sinni hafi hún verið að efna loforð sem seðlabankastjóra hafi verið gefin við skipan hans í starfið. Sigurður Kári sagði að samkvæmt heimildum sem fjölmiðlar hefðu aflað sér hefði loforðið verið gefið í forsætisráðuneytinu.

Þessu hafnaði ráðherra og sagði jafnframt að formaður bankaráðsins hefði sjálf sagt að tillagan yrði dregin til baka. Forsætisráðherra sagðist sjálf telja að sú niðurstaða væri farsælust að hennar eigin mati.

Sigurður Kári var ósáttur við hve rýr svör forsætisráðherra voru og sagði hana ekki hafa svarað öllum þeim spurningum sem hann lagði fyrir hana. Undir það tók Birkir J. Jónsson.
(visir.is)

Það er ósmekklegt,að stjórnarandstaðan skuli saka forsætisráðherra um að hafa lofað launahækkun.Ráðherrann hefur nú rekið þessar dylgjur algerlega til baka.

 

Björgvin Guðmundsson

 



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband