Laugardagur, 8. maí 2010
Halldór Ásgrímsson:Þarf ekki að biðjast afsökunar!
Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, telur sig ekki þurfa að biðjast afsökunar á sínum störfum í sem ráðherra á árunum fyrir bankahrun. Alltaf séu gerð mistök en hann segist hafa starfað á grundvelli samvisku sinnar. Rætt var við Halldór í Kastljósi í kvöld.
Halldór sagðist ekki kannast við að einkavæðingu bankanna hafi verið handstýrt. Teknar hafi verið ákvarðanir á þeim forsendum sem lágu fyrir á sínum tíma. Að hans mati hefði átt að grípa til aðgerða fyrrihluta árs 2006 þegar hættumerki sáust vegna stærðar bankanna. Halldór sagðist alltaf hafa verið þeirrar skoðunar að mikilvægt væri að erlendur banki næði fótfestu hér á landi.(visir.is)
Afstaða Halldórs kemur ekki á óvart.Rannsóknarnefnd alþingis segir,að enginn af þeim,sem nefndin yfirheyrði hafði viljað axla ábyrgð.Halldór viðurkenndi þó,að grípa hefði átt til aðgerða 2006,þegar hættuverki sáust vegna mikillar stærðaraukningar bankanna. Þá sat stjórn íhalds og framsóknaqr. En hún gerði ekkert.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.