BM Vallá gjaldþrota

Eitt stærsta iðnfyrirtæki landsins, BM Vallá, var tekið til gjaldþrotaskipta í dag. Stjórnarformaðurinn Víglundur Þorsteinsson hefur starfað við félagið í hálfa öld og sér nú á bak ævistarfinu.

Öll fyrirtæki sem eitthvað kveður að í steypuiðnaði á Íslandi hafa nú lent í þroti. BM Vallá var hins vegar stærst þeirra, var með um fimmhundruð manns í vinnu og tíu milljarða króna veltu þegar best lét á árinu 2007.

Starfsemi félagsins teygði sig yfir víðtækt svið byggingariðnaðar en vegna samdráttar hafði starfsmönnum fækkað niður í tvöhundruð. Félagið hefur verið í greiðslustöðvun undanfarna þrjá mánuði meðan stjórnendur þess, undir forystu Víglundar Þorsteinssonar, hafa freistað þess að semja við lánveitendur. Arion banki hafnaði hins vegar nauðasamningum og krafðist gjaldþrotaskipta.

Víglundur kveðst vilja segja það hreint og skýrt að það hafi verið faglegur munur á vinnubrögðum, annarsvegar Lýsingar og Landsbanka, og hins vegar Arion banka, sem ekki hafi verið í faglegum vinnubrögðum.

Með afstöðu sinni segir hann ráðamenn Arion banka valda óþarfa tjóni. Þeir hafi tekið huglausu og léttu ákvörðunina, en ekki ábyrga afstöðu. Þetta á endanum valdi þeim og öllum kröfuhöfum óþarfa tjóni.

Hann segir gengishrun krónunnar meginástæðu gjaldþrotsins enda hafi fyrirtæki eins BM Vallá almennt verið fjármögnuð með erlendum lánum. Ef það eigi að endurreisa framleiðsluatvinnuvegina í landinu sé augljóst að það verði að afskrifa skuldir þessara fyrirtækja. Annars rísi þessi framleiðsla ekki upp að nýju.

Fyrir Víglund Þorsteinsson, sem stýrt hefur BM Vallá um áratugaskeið, eru þetta þáttaskil.

"Fyrst kom ég hérna fyrir fimmtíu árum," segir Víglundur. "Þannig að þetta er ævistarfið," og viðurkennir að það hafi ekki verið auðvelt að fara í Héraðsdóm í dag og óska eftir gjaldþrotaskiptum. .Ví(visir.is)

BM Vallá hefur um langt skeið verið eitt öflugasta fyrirtækið  í byggingariðnaði.Víglundur Þorsteinsson hefur lengst af rekið fyrirtækið og yfirleitt staðið sig vel.Hann hefur starfað við fyrirtækið í 50 ár.Hann sér nú á eftir ævistarfinu.Gjaldþrot BM Vallaá leiðir í ljós,að bankahrunið og gengishrunið þyrmir engum.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband