Föstudagur, 21. maí 2010
Besti flokkurinn með hreinan meirihuta
Besti flokkurinn fær hreinan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur, 8 kjörna fulltrúa af fimmtán, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, en rúm vika er í kosningar.
Framsóknarflokkurinn mælist með 2,7% fylgi og kemur engum inn. Sjálfstæðisflokkurinn tapar tæpum níu prósentustigum - mælist nú með þrjá borgarfulltrúa, en þeir voru fimm í síðustu könnun.
Reykjavíkurframboðið, H-listi Ólafs F. Magnússonar og Frjálslyndi flokkurinn mælast með um hálft prósentustig. Samfylkingin tapar einum manni frá síðustu könnun og fær þrjá borgarfulltrúa, mælist með jafnt fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn. Vinstri grænir tapa sjö prósentustigum frá síðustu könnun og koma einum manni inn.
Besti flokkurinn mælist með 44 prósenta fylgi , fær 8 menn. Fylgi hans tvöfaldast frá síðustu könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, þegar hann mældist með fjóra borgarfulltrúa.
Hringt var í 800 manns í gærkvöldi eftir slembiúrtaki og tóku 69 prósent afstöðu til spurningarinnar um hvaða lista fólk myndi kjósa ef kosið yrði nú. Færri eru óákveðnir en í síðustu könnun, en þá tóku 59 prósent afstöðu.
Besti flokkurinn er miðað við könnunina nú orðinn lang stærsta stjórnmálaaflið í borginni með hreinan meirihluta. Hann bætir við sig á kostnað stóru flokkanna og mælist með meira fylgi en Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn til samans.(visir.is)
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.