Laugardagur, 22. maí 2010
Atvinnulausir fá atvinnu við gosstöðvarnar
Um fjörutíu störf verða til við aðstoð við búskap í sveitum við Eyjafjallajökul á næstunni. Samkomulag náðist um þetta í gær.
Brýnast þykir að aðstoða bændur við sauðburð þar sem aðstæður á fjárbúum eru mjög erfiðar. Því verður leitað til atvinnulausra bænda og annarra með reynslu af búskap til að aðstoða við verkin.
Þá mun Landgræðslan geta ráðið allt að þrjátíu manns í vinnu í mánuð við að girða og viðhalda girðingum um beitarhólf fyrir sauðfé sem flutt verður á brott.-(visir.is)
Það er gott að unnt er að veita vinnu við aðstoð á gossstöðvunum. Það er beggja hagur,bændanna og þeirra,sem eru atvinnullausir.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.