Þriðjudagur, 25. maí 2010
Krónan heldur áfram að styrkjast
Tæknigreining bendir til þess að krónan sé í styrkingarfasa og horfur séu á áframhaldandi styrkingu. Þetta kemur fram í vikulegum Markaðsfréttum Íslenskra verðbréfa.
Fram kemur í Markaðsfréttunum að íslenska krónan styrktist verulega í síðustu viku. Samtals styrktist krónan um 2,9% og endaði gengisvísitalan í 215,14 stigum. Hefur krónan ekki verið svo sterk síðan í apríl 2009.
Íslenska krónan styrktist mest gagnvart Ástralíudollar um 9,1% en styrktist einnig gagnvart norsku krónunni og helstu nýmarkaðsmyntum. Eini gjaldmiðillinn sem hækkaði gagnvart íslensku krónunni var japanska jenið en það styrktist um 0,4%. Það voru því gjaldmiðlar sem taldir eru áhættumeiri og gjaldmiðlar landa sem flytja út hrávörur sem lækkuðu mikið í vikunni.
Frá áramótum hefur einungis Bandaríkjadalur og japanska jenið hækkað gagnvart íslensku krónunni en aðrir helstu gjaldmiðlarnir hafa lækkað. Bandaríkjadalur hefur hækkað um 2,8% og japanska jenið um 5,5%. Mesta lækkun hefur verið á gengi evrunnar en hún hefur lækkað um 10,8% frá áramótum.(visir.is)
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.