Þriðjudagur, 25. maí 2010
ASÍ gagnrýnir ríkisstjórnina
Það var þungt hljóðið í formönnum aðildarfélaga ASÍ á formannafundi í dag samkvæmt tilkynningu frá ASÍ.
Það er ljóst að erfiðir kjarasamningar fara í hönd með haustinu þar sem verkalýðshreyfingin mun nýta afl sitt til að sækja kjarabætur. Mikil gagnrýni kom fram á ríkisstjórnina fyrir ýmsar sakir en helst vegna aðgerðarleysis í atvinnumálum. Gengu sumir fundarmanna svo langt að segja ríkisstjórnina komna á endastöð.
Það voru einkum þrjú stef sem einkenndu umræðuna um efnahags- og atvinnumál. Ríkisstjórnin fékk falleinkunn fyrir aðgerðaleysi í baráttunni gegn atvinnuleysi og seinagang við að koma verkefnum í gang sem lífeyrissjóðirnir eru tilbúnir að fjármagna. Þá bar nokkuð á ótta um að ríkisstjórnin myndi ráðast á millitekjuhópinn þegar hún talar hátekjuskatt. Skýrt kom fram í máli verkalýðsforingjanna að svik ríkisstjórnarinnar um hækkun persónuafsláttar nú í vetur eru geymd en ekki gleymd.
Rætt var um kjarasamningana sem framundan eru í haust. Kom fram í máli manna að erfiðar viðræður stæðu fyrir dyrum og mikilvægara en oftast áður að verkalýðshreyfingin standi saman. Sameiginlegur slagkraftur hreyfingarinnar er afl sem gæti þurft að beita í kjarasamningsgerðinni.
Í þriðja lagi var rætt um mikilvægi þess að ná fram jöfnun lífeyrisréttinda á við opinbera starfsmenn. Brann það mál mjög heitt á mörgum fundarmönnum.(visir.is)
Taka má undir gagnrýni ASÍ varðandi seinagang í aðgerðum til atvinnuaukningar.Hins vegar tek ég ekki undir gagnrýni ASÍ í skattamálum.Ég tel óhætt að leggja á hátekjuskatt og betra að gera það en að skera of mikið niður.Varðandi lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna er rétt að rifja upp að þegar opinberir starfsmenn sömdu um betri lífeyrisréttindi en aðrir hafa samþykktu opinberir starfsmenn um leið að sætta sig við lægri laun en tíðkuðust á frjálsum markaði.Ef lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna verða skert þarf að bæta kjör þeirra á móti.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.