Ásta Ragnheiður hittir varaforseta USA og forseta fulltrúadeildar þingsins

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, fer á morgun til Washington ásamt þingforsetum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja til fundar við Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjanna.

Gert er ráð fyrir að þingforsetarnir hitti Joe Biden, varaforseta Bandaríkjanna og forseta öldungadeildarinnar, Howard Berman, formann utanríkismálanefndar fulltrúadeildarinnar, og aðra fulltrúa nefndarinnar. Þá munu þingforsetarnir taka þátt í pallborðsumræðum hjá stofnuninni „Centre for Strategic and International Studies" í Washington, eftir því sem fram kemur á vef Alþingis.

Fundurinn er haldinn í framhaldi af fyrri fundum þingforsetanna með forseta fulltrúadeildarinnar, með það að markmiði að efla tengsl við Bandaríkjaþing og ræða sameiginleg málefni.(visir.is)

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband