Laugardagur, 29. maí 2010
Rannsóknarnefndin vill upplýsingar frá öllum ráðherrum,sem voru í stjórn frá 1.jan. 2007
Allir ráðherrar sem sátu í ríkisstjórn frá 1. janúar fram að hruni hafa fengið bréf frá þingmannanefnd um rannsóknarskýrsluna. Þar er þeim gefinn kostur á því að útskýra sitt sjónarmið varðandi aðkomu þeirra að hruninu eða aðgerðaleysi.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er tímasetningin miðuð við fyrningarákvæði varðandi Landsdóm. Málum verður ekki vísað til hans vegna gjörða sem fram fóru fyrir 1. janúar 2007.
Þingmannanefndin hefur lagt mikla áherslu á að ljúka þessum þætti rannsóknar sinnar sem fyrst. Óvíst er hvort nefndin mun skoða ráðslag fleiri ráðherra, þó, formsins vegna, ekki verði hægt að vísa þeim málum til Landsdóms. Samkvæmt heimildum blaðsins hafa ráðherrarnir fyrrverandi frest til 8. júní til að svara erindinu.
Atli Gíslason, formaður nefndarinnar, vildi ekki tjá sig um bréfasendingarnar. Hann sagði í vikunni að nefndin gerði allt sem í hennar valdi stæði til að skila vinnu sinni innan tímamarka. Henni er ætlað að skila tillögum sínum á yfirstandandi þingi, en samkvæmt nýrri starfsáætlun verða þinglok 15. september. Atli sagði þó mögulegt að þingmannanefndin þyrfti lengri tíma.
Nefndin hefur lagt mikla áherslu á að vinna fyrir opnum tjöldum og fundargerðir hennar birtast á Netinu. Atli segir bréfin dæmi um gagnsæja stjórnsýslu nefndarinnar.(visir.is)
Fróðlegt verður að sjá hver niðurstaðan verður af rannsókn nefndarinnar á störfum ráðherranna,sem fengið hafa bréf frá nefndinni.Aðalspurningin er:Verða einhverjir ráðherrar dregnir fyrir landsdóm og þá hverjir.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.