Það er verið að níðast á öldruðum og öryrkjum

Við gerð almennra kjarasamninga í feb.  2008 hækkuðu lágmarkslaun verkafólks um 16% og fóru í 145 þús. á mánuði.Lífeyrir aldraðra hækkaði hins vegar aðeins um 7,4% og fór í 136 þús. á mánuði.FEB í Reykjavík og 60+ í Samfylkingunni mótmæltu þessu og töldu að lífeyrir aldraðra hefði átt að hækka   um sama hundraðshluta og lágmarkslaun hækkuðu um. en það gerðist bæði 2006 og 2003 við gerð kjarasamninga.  Eftir þessa hækkun á lífeyri aldraðra nam  hann sem hlutfall af lágmarkslaunum 94,74% en árið 2007 nam lífeyrir aldraðra sem hlutfall af lágmarkslaunum um 100%. Lífeyrir aldraðra hafði því lækkað frá árinu áður. 1.júlí . var
ákveðið að allir eldri borgarar skyldu fá a.m.k. 25 þús. kr. úr lífeyrissjóði eða ígildi þess.Kom sú breyting til framkvæmda 1.ágúst  2008.Ríkissjóður greiddi þessa hækkun,sem kölluð  var uppbót á eftirlaun. Þessi greiðsla til aldraðra olli skerðingu á bótum almannatrygginga og greiðslan var einnig skattlögð. Landssamband eldri borgara taldi,að greiða hefði átt umræddar 25 þús. krónur út hjá Tryggingastofnun ( sem lífeyri eða uppbót) en þá hefði hún ekki valdið skerðingu annarra tryggingabóta.
Félags-og tryggingamálaráðherra  gaf út reglugerð 16.sept. 2008 um lágmarksframfærslutryggingu  lífeyrisþega.Samkvæmt henni varð þessi trygging 150 þús. á mánuði  fyrir skatta. Áður en reglugerðin var gefin út námu samanlagðar greiðslur til ellilífeyrisþega   kr. 148.516 á mánuði. Með útgáfu reglugerðarinnar hækkaði sú upphæð um  kr. 1.484 á  mánuði fyrir skatta.Það  var ekki mikil hækkun. Það  var smátt skammtað til eldri borgara að hækka  lífeyri þeirra um 1.484 kr. á mánuði.Samkvæmt reglugerðinni var uppbótin á eftirlaun (25000 kr) flokkuð með tryggingabótum.Nam hlutfall lífeyris  af lágmarkslaunum því 103%  eða sama hlutfalli og 1995..Það er tiltölulega lítill hópur eldri borgara,sem fékk þessa rausnarlegu uppbót.  Það  voru þeir,sem ekki eru í lífeyrissjóði eða hafa aðeins 25000 kr. á mánuði úr lífeyrissjóði.
Vegna þessara "kjarabóta" eldri borgara,sem nú hafa verið raktar hefur núverandi félagsmálaráðherra haldið kjörum eldri borgara niðri,skorið þau niður 1.júlí 2009 og svipt eldri borgara og öryrkja öllum verðlagsuppbótum á lífeyri allt árið  2009 og fram á þennan dag. Launþegar fengu 10% kauphækkun 2009,aldraðir enga.Launþegar fengu 2,5% kauphækkun 1.jan sl. en aldraðir enga. Launþegar fengu 6500 kr., kauphækkun 1,júní sl. en aldraðir enga. Hvað ætlar félagsmálaráðherrann að níðast lengi á öldruðum  og öryrkjum.Hvenær fá þessir hópar leiðréttingu á lífeyri sínum.
Björgvin Guðmundsson

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband