BHM leggst gegn launafrystingu

BHM minnir stjórnvöld að gefnu tilefni á að samningsréttur um kjör launamanna er í höndum stéttarfélaga. Laun háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna verða því ekki ákveðin með öðrum hætti en kjarasamningsviðræðum við hlutaðeigandi stéttarfélög. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Þar segir ennfremur:

Vegna umræðu um launafrystingu til eins árs eða jafnvel lengur, skal enn fremur minnt á að kjarasamningar félagsmanna BHM hjá hinu opinbera hafa verið lausir í rúmt ár og væri stjórnvöldum nær að blása lífi í viðræður um þá samninga en að leggja til áframhaldandi kjaraskerðingar.

BHM gaf stjórnvöldum með aðild sinni að stöðugleikasáttmála tóm til að hefja endurskipulagningu opinbera kerfisins og endurreisn atvinnulífsins. Það tóm hefur ekki verið nýtt. Framlag BHM á þeim tíma var m.a. að slá launakröfum á frest, en svar stjórnvalda hefur falist í beinum launalækkunum og hækkunum gjalda til þessa hóps.

Miðstjórn BHM hefur þegar ályktað gegn aðild að framlengdum sáttmála um láglaunastefnu.

BHM andmælir kröftuglega allri frekari umræðu um kjarajöfnun á kostnað háskólamenntaðra og minnir á þær skerðingar kjara sem þegar hafa dunið á félagsmönnum bandalagsins.

BHM mótmælir því einnig að fjallað sé um laun fyrir sérfræðiþjónustu af því tagi sem háskólamenntaðir launamenn veita eins og um félagslegar bætur væri að ræða.(visir.is)

Björgvin Guðmundsson

 

 



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband