Fiskmarkaður opnaður í gömlu höfninni

Fiskmarkaður við gömlu höfnina í Reykjavík var opinn í annað sinn í gær. Markaðurinn er ætlaður almenningi og þar er lagt upp með að sölumenn geti upplýst kaupendur um gæði, uppruna og notkun fisks. Auk fersks sjávarfangs eru seld egg, grænmeti, ostar og margt fleira. Markaðurinn verður opinn alla laugardaga fram á haust. Gestir og gangandi létu rigninguna ekki aftra sér frá því að smakka nýjungar og skoða það sem sölumenn höfðu upp á að bjóða.(ruv.is)

Það er fagnaðarefni,að fiskmarkaður fyrir almenning skuli hafa verið opnaður í gömlu höfninni.Slíkir markaðir eru algengir í mörgum nágrannalöndum okkar.T.d. eru ágætir fiskmarkaðir í London,Billingsgate,í Brussel og Brugge í Belgíu,í Helsinki og fleiri borgum.Fiskmarkaðurinn hér mun áreiðanlega auðga mannlífið,fyrir utan það,að auðvelt verður fyrir Reykvíkinga að fá nýjan fisk í soðið.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband