Verður Hanna Birna forseti borgarstjórnar?

Hinn nýi meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar mun hafa boðið Hönnu Birnu leiðtoga Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn og fráfarandi borgarstjóra embætti forseta borgarstjórnar.Taldar eru nokkrar líkur á að hún þiggi embættið.Flogið hefur fyrir ,að hún vilji,að um eitthvað meira samstarf verði að  ræða en aðeins það sem lýtur af embætti forseta.Spurningin er sú hvort nýi meirihlutinn býður Sjálfstæðisflokknum  formennsku í einhveri nefnd og þar með aðild að stjórn ákveðins málaflokks. Einnig vaknar spurningin hvort Sóley Tómasdóttur leiðtoga VG í borgarstjórn verði þá jafnframt boðin formennska í einhverri nefnd þannig,að um allsherjar samvinnu verði að  ræða um stjórn borgarinnar. Ef þessi verður niðurstaðan verður um mjög sögulega breytingu á stjórn borgarinnar  að ræða.

 

Björgvin Guðmundsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband