Sunnudagur, 13. júní 2010
Stuðningur við Amnesty International
Við hjónin skruppum í Kringluna og hittum þar unga stúlku sem reyndist fulltrúi Amnesty International Hún spurði hvort við vildum gerast styrktarfélagar í samtökunum.Við samþykktum það.Starf samtakanna er mjög merkilegt.Þau berjast fyrir mannréttindum um allan heim.Þau berjast fyrir bættum aðbúnaði fanga,gegn pyntingum fanga,gegn því að fólki sé haldið í fangelsum að ósekju.Meginherferð Amnesty International Krefjumst virðingar hefur það að markmiði að endi verði bundinn á mannréttindabrot,sem ýta undir og viðhalda fátækt.-840 milljónir manna búa við langvarandi næringarskort í heiminum,100 milljónir manna njóta engrar menntunar.Á hverjum degi deyja 11 milljón börn undir 5 ára aldri .-Framkvæmdastjóri Amnesty International á Íslandi er Jóhanna K.Eyjólfsdóttir.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.