ESB ræðir umsókn Íslands 17.júní

Búist er við því að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu verði tekin fyrir á fundi leiðtogaráðs sambandsins þann 17. júní næstkomandi. Þetta hefur ríkisútvarpið eftir Kristjáni Guy Burgess, aðstoðarmanni utanríkisráðherra.

Umræður um umsóknina er þó ekki að finna í formlegri dagskrá ráðsins. Taka átti umsókn Íslands fyrir í mars en þá gátu þýsku fulltrúarnir ekki tekið afstöðu til hennar. (visir,is)

Ekki þarf neina viðkvæmni þó umsóknin sé rædd á þjóðhátíðardag okkar.Hér er aðeins verið að ræða um að setja í gang umsóknarferli.Það ferli verður langt og alls óvíst hvernig því líkur. Við göngum ekki inn í ESB nema við fáum góðan samning.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband