Utanríkisráðuneytið sparar með sölu sendiherrasbústaða

50 milljónir króna runnu í ríkissjóð þegar skipt var um sendiherrabústað í Lundúnum. Minna hús og ódýrara í rekstri var keypt í staðinn.

Eldri sendiherrabústaðurinn var seldur í árslok á því sem samsvarar 1,7 milljörðum. Sá nýi var síðan keyptur á 850 milljónir króna. Þá skilaði sendiherrabústaðurinn í New York ríki 570 milljónum króna. Utanríkisráðuneytið leigir hús á meðan það leitar að hentugum bústað.

Sendiherrabústaðirnir tveir voru settir á sölu í ársbyrjun 2009 ásamt þeim í Osló og Washington.  Ekki tókst að selja þá og voru þeir teknir af sölu, þar til betur árar. Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, segir markmið sölunnar hafa verið að fá peninga inn í ríkissjóð. Ekki liggi fyrir hvort fleiri bústaðir verði seldir.(ruv.is)

Björgvin Guðmundsson 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband