Lífeyrissjóðir kaupa þriðjung í Icelandair

Framtakssjóður lífeyrissjóðanna hyggst kaupa þriðjungshlut í Icelandair Group fyrir þrjá milljarða króna. Tilkynning um þetta var birt á vef Kauphallarinnar síðdegis í dag.

Samkvæmt samningi við Icelandair Group skuldbindur félagið sig til að afla eins milljarðs króna í nýju hlutafé fyrir lok júlí. Gert er ráð fyrir að stærstu kröfuhafar Icelandair Group breyti þriggja og hálfs milljarða króna skuldum í hlutafé.

Við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækisins er gert ráð fyrir að skuldir þess verði lækkaðar um ríflega tíu milljarða króna, meðal annars með yfirfærslu og sölu á tilteknum eignum sem eru ekki hluti af kjarnastarfsemi félagsins. Tap Icelandair Group eftir skatta nam tæpum tveimur milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Þetta er fyrsta fjárfesting Framtakssjóðsins.(ruv.is)

Björgvin Guðmundsson

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband