Fimmtudagur, 24. júní 2010
Jóhanna:Stjórnvöld bíða úrskurðar Hæstaréttar
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á þingi í dag um áhrif dóms Hæstaréttar á gengistryggðum lánum að það væri mikilvægt að úr óvissunni yrði skorið fyrir dómstólum. Hún segir stjórnvöld ekki ætla að aðhafast fyrr en dómstólar hafa skorið úr um óvissuþætti eins og hvaða vexti lánin eigi að bera.
Þá sagði Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra að fjármálakerfið tæki á sig mjög þungt högg ef vextirnir myndu haldast jafn lágir og þeir eru nú. Hann sagði vandamálið alvarlegt og það væri ekki hægt aðstinga höfðinu í sandinn vegna málsins.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir skilaboð stjórnvalda afar misvísandi. Hann benti á að viðskiptabankarnir hefðu sent frá sér yfirlýsingar undanfarið þar sem þeir lýsa því yfir að þeir munu geta tekið þeim áföllum sem er óhjákvæmileg afleiðing dóms Hæstaréttar.(visir.is)
Mér virðist afstaða stjórnvalda skynsamleg. Þau hyggjast bíða úrskurðar Hæstaréttar um vexti af erlendu bílalánunum.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.