Kínverskir verktakar hafa ekki forgang

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir engar viðræður hafa átt sér stað við kínversk fyrirtæki um aðkomu að byggingu Búðarhálsvirkjunar. Undirrituð hafi verið viljayfirlýsing við kínverska fyrirtækið CWE og EXIM Bank en hún feli ekki í sér neinar skuldbindingar heldur það að fyrirtækinu sé velkomið að bjóða í verkhluta Búðarhálsvirkjunar.

Samiðn sendi frá sér harðorða ályktun í síðustu viku þar sem hugsanleg aðkoma kínverskra verktaka að virkjuninni er gagnrýnd. Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar, telur að semji Landsvirkjun við kínverskt fyrirtæki um byggingu virkjunarinnar muni það nýta eigið starfsfólk og fáir ef nokkrir Íslendingar muni fá vinnu við bygginguna. Framkvæmdin hefði því ekki þau áhrif á íslenskt efnahagslíf sem kveðið sé á um í stöðugleikasáttmálanum.

Hörður Arnarson segir verkið boðið út í samræmi við lög um útboð á Evrópska efnahagssvæðinu og lögum samkvæmt sé erlendum fyrirtækjum frjálst að bjóða í verkið. „Landsvirkjun mun á engan hátt gera íslenskum verktökum erfitt fyrir að bjóða í verkið," segir Hörður. - (visir.is)

Það mun nokkur léttir fyrir íslenska verktaka að heyra,að kínverskir verktakar eiga ekki að njóta forgangs þegar kemur að útboði á Búðarhálsvirkjun. Íslenskir iðnaðarmenn binda vonir við fá vinnu við þessa virkun.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband