Lágmarkslaun verði 200 þús. kr. á mánuði

Verkalýðsfélag Akraness segost vilja sjá kröfu um að lágmarkslaun verði ekki undir 200 þúsund krónum í komandi kjarasamningum en nú  eru lágmarkslaun fyrir fulla vinnu, 173 tíma á mánuði, 165.000 krónur, að því er kemur fram á heimasíðu félagsins.

„(Það liggur) hvellskýrt fyrir að krafa Verkalýðsfélags Akraness í komandi kjarasamningum verður að lágmarkslaun í þessu landi verði hækkuð allverulega, enda eru þau íslensku samfélagi, atvinnurekendum og síðast en ekki síst okkur í verkalýðshreyfingunni til skammar," skrifar Vilhjálmur Birgisson, formaður félagsins á vef þess í dag. 

Hann segir, að Verkalýðsfélag Akraness muni aldrei taka þátt í neinu í anda þess stöðugleikasáttmála sem gerður var í júní 2009 en þar hafi verkafólk og aðrir launþegar verið þvinguð til að fresta og afsala sér sínum hófstilltu launum sem um var samið 17. febrúar 2008.

„Það þarf einnig að gera þá skýlausu kröfu til allra fyrirtækja sem hafa fjárhagslega burði til að þau komi með veglegar launahækkanir til handa sínu starfsfólki enda er fullt af fyrirtækjum sem hafa fulla burði til að gera slíkt. Nægir að nefna flestöll útflutningsfyrirtæki sem hafa verið að gera góða hluti vegna þeirra gengisbreytinga sem orðið hafa á undanförnum 18 mánuðum," segir Vilhjálmur og bætir við, að það sé tímabært að íslensk verkalýðshreyfing standi þétt saman og sýni tennurnar í því að bæta kjör sinna félagsmanna.(mbl.is)

Krafa Verkalýðsfélags Akraness er eðlileg. Það lifir enginn af lægri launum en 200 þús.á mánuði. Í rauninni er sú upphæð alltof lág.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband