Engir biðlistar á leikskólum í Rvk

Öll börn í Reykjavík sem fæddust árið 2008 hafa nú þegar fengið boð um pláss á leikskóla, samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg.

Það var stefna borgaryfirvalda í Reykjavík að öll börn 18 mánaða og eldri ættu kost á leikskóladvöl. En samkvæmt nýjum reglum sem tóku gildi í vetur er það orðað þannig að miðað sé við að börn geti hafið leikskóladvöl árið sem þau verða tveggja ára.

Fréttastofa fékk þær upplýsingar frá leikskólasviði Reykjavíkur að nú hefðu öll börn fædd 2008 sem voru á biðlista í vor fengið boð um leikskólapláss. Í stöku tilfellum hafi foreldrar hins vegar afþakkað boðið, til dæmis vegna þess að leikskólaplássið sem þeim bauðst var ekki í skóla sem þeir settu í fyrsta eða annað sæti. Þá hefur einhverjum börnum sem fædd eru 2009 og eru í forgangi, til dæmis vegna fötlunar, verið boðið pláss.

(visir.is)

Þetta eru ánægjulegar fréttir. Áður hafði  verið sagt,að vegna niðurskurðar yrði að fresta því að viss börn fengju leikskólavist.Það mál hefur nú verið leyst.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband