Föstudagur, 16. júlí 2010
Lífeyrissjóðirnir búnir að ná sér eftir hrunið
Íslensku lífeyrissjóðirnir virðast vera búnir að ná vopnum sínum eftir bankahrunið haustið 2008, að mati sérfræðinga Efnahags- og samvinnustofnunarinnar (OECD).
Í nýrri skýrslu kemur fram að eignir íslensku lífeyrissjóðanna séu nú um 3,5 prósentum verðmætari en þær voru í árslok 2007, níu mánuðum fyrir hrunið.
Þetta er betri árangur en í flestum aðildarlöndum OECD. Fram kemur að aðeins í sjö ríkjum hafi lífeyrissjóðirnir náð sömu stærð og fyrir hrun. Það er í Austurríki, Chile, Noregi, Nýja-Sjálandi og Ungverjalandi, auk Íslands.
Sérfræðingar OECD telja að enn gæti liðið nokkur tími þar til lífeyrissjóðir í öðrum ríkjum komist á svipað ról og þeir voru í árslok 2007. Í heild hafa lífeyrissjóðirnir í öllum ríkjum OECD náð að vinna upp 40 prósent af því tapi sem þeir urðu fyrir á árinu 2008.(visir,is)
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.