Vissulega ber Björgólfur Thor ábyrgð á Icesave

Icesave reikningar Landsbankans eru ekki hluti af skuldauppgjöri Björgólfs Thors Björgólfssonar þrátt fyrir að félag í hans eigu hafi átt tæplega helming hlutabréfa í bankanum og fengið marga milljarða í arð. Talsmaður Björgólfs segir að hann beri enga ábyrgð á Icesave.

Björgólfsfeðgar ásamt Magnúsi Þorsteinssyni keyptu tæplega 46 prósent hlut ríkisins í Landsbankanum þegar bankinn var einkavæddur í árslok 2002.

Björgólfsfeðgar áttu að meðaltali um 45 prósent hlut í bankanum frá einkavæðingu fram að hruni haustið 2008. Á þessu tímabili fengu þeir fjóra og hálfan milljarð króna í arðgreiðslur fyrir sinn eignarhlut.

Í gær tilkynnti Björgólfur Thor Björgólfsson um að hann hafi komist að samkomulagi við sína lánardrottna um heildaruppgjör allra skulda án afskrifta - eins og segir í tilkynningunni.

Inni í þessu uppgjöri er þó ekki Icesave reikningur Landsbankann sem óbreyttu mun kosta þjóðarbúið mörg hundruð milljarða króna. Talsmaður Björgólfs segir að hann beri ekki ábyrgð á Icesave.

„Icesave reikningurinn er ekki skuld Björgólfs Thors. Hann var fjárfestir í Landsbankanum. Hann kom aldrei að stjórn bankans og mátti ekki skipta sér að rekstri hans enda var hann ekki þar í stjórn svo Icesave var ekki á hans ábyrgð frekar en annarra þeirra þúsunda hluthafa sem áttu hlut í Landsbankanum við fall hans," segir Ragnhildur. Hún segir að Björgólfur hafi borið sína ábyrgð því að hann hafi misst allan hlut sinn í fyrirtækinu þegar að bankinn féll.

Ragnhildur segir að stjórnvöld beri ábyrgðina á þessu Icesave klúðri. Hún telji að það þurfi að fara að semja um málið. (visir.is)

Þeir Björgólfsfeðgar áttu yfir 40 % í Landsbankanum.Vissulega báru þeir ábyrgð á þeirri ráðstöfun Landsbankans að stofna Icesave reikninga í Bretlandi og Hollandi.Þetta var m.a. gert til þess að ná í lausafé.Landsbankinn var einkabanki og bar alla ábyrgð á Ice save. Ríkið bar enga ábyrgð á þeim reikningum.Landsbankinn og eigendur hans eiga að greiða Icesave skuldina að fullu. Það er ekkert um það  í tilskipun ESB ,að ríki beri ábyrgð á innstæðutryggingum.Islenska ríkið ætlar að greiða hluta Icesace þar eð Bretar,Hollendingar og AGS kúguðu Íslendinga. Svo einfalt er það.

 

Björgvin Guðmundssin
.


 

  •  
    •  


    « Síðasta færsla | Næsta færsla »

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband