Verðbólgan komin niður í 4,8%

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí er 361,7 stig og lækkaði um 0,66% frá fyrra mánuði. Ársverðbólgan mælist því 4,8%.

 

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að þetta sé mesta lækkun vísitölunnar milli mánaða síðan í mars 1986. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 343,6 stig og lækkaði hún um 0,78% frá júní.

Sumarútsölur eru í fullum gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 10,3% (vísitöluáhrif -0,68%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 6,1%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs lækkað um 0,6% sem jafngildir 2,3% verðhjöðnun á ári (3,8% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).

 

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2010, sem er 361,7 stig, gildir til verðtryggingar í september 2010. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.142 stig fyrir september 2010(visir.is)

Það er fagnaðaðarefni að verðbólgan skuli vera komin niður í 4,8%.Það hefur góður árangur náðst í baráttu við verðbólguna að undanförnu.Því er spáð að verðbólgan verði komin í 2,5% um áramót.

 

Björgvin Guðmundsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband