Fimmtudagur, 5. ágúst 2010
Gistinóttum fjölgaði í júní
Gistinætur á hótelum í júní síðastliðnum voru 157.000 en voru 149.000 í sama mánuði árið 2009.
Fjölgun gistinátta í júní nær til allra landsvæða. Mest varð fjölgun gistinátta á Vesturlandi og Vestfjörðum um 13%, úr 6.500 í 7.300. Á Suðurnesjum fjölgaði gistinóttum um 12% milli ára og fóru úr 5.800 í 6.500. Gistinóttum á Suðurlandi fjölgaði um 7% og úr 20.000 í 21.300 samanborið við júní 2009. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 6%, voru 14.600 en fóru í 15.500. Á Austurlandi jukust gistinætur úr 7.500 í 7.900 eða um 5% samanborið við júní 2009. Á Höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum einnig úr 94.400 í 98.400 eða um 4% miðað við sama tímabil 2009.
Fjölgun gistinátta á hótelum í júní nær eingöngu til erlendra gesta, en gistinóttum Íslendinga á hótelum fækkaði um 20% samanborið við júní 2009 á meðan gistinóttum erlendra gesta fjölgaði um 10%.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.