Mánudagur, 16. ágúst 2010
Jóhanna:Ómaklega vegið að Gylfa
Jóhanna Sigurðardóttir segir að ómaklega hafi verið vegið að Gylfa Magnússyni viðskiptaráðherra. Hann hafi gefið fullnægjandi skýringar á svörum sínum á Alþingi um gengistryggð lán.
Þingflokksfundi Samfylkingarinnar lauk á fjórða tímanum í dag. Jóhanna segir að ekkert gefi sér tilefni til að fara fram á afsögn Gylfa vegna þessa máls. Þó standi til að stokka upp í ríkisstjórninni en ekki sé hægt að segja til um hvort það verði á næstu vikum eða mánuðum. Jóhanna segist styðja Gylfa.(ruv.is)
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.