Þriðjudagur, 17. ágúst 2010
Iceland Ecpress í mikilli sókn
Farþegar Iceland Express voru tæplega áttatíu þúsund í júlí síðastliðnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en um er að ræða 35 prósenta fjölgun frá sama tíma í fyrra. Það sem af er ágústmánuði hefur farþegum einnig fjölgað umtalsvert miðað við ágúst í fyrra.
Farþegum félagsins fjölgaði á flesta áfangastaði, sem Iceland Express flýgur til," segir ennfremur. Þá hefur New York slegið í gegn sem áfangastaður, enda hefur félagið ákveðið að fljúga þangað allan ársins hring og daglega frá júníbyrjun á næsta ári." Þá hefur félagið einnig ákveðið að taka upp áætlunarflug til Boston og Chicago næsta sumar.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.