Órólega deildin í VG stefnir stjórninni í hættu

Björgvin Guðmundsson skrifar grein í Fréttablaðið í dag. Þar segir svo:
 Órói hefur  aukist innan Vinstri grænna vegna stjórnarsamvinnunnar við Samfylkinguna.Síðasta upphlaup VG vegna Magma málsins var stórt og ekki enn séð fyrir endann á því.Stuttu áður var upphlaup hjá VG vegna umsóknarinnar um aðild að ESB en því máli var frestað til hausts.Það var þó í stjórnarsáttmálanum að sækja ætti um aðild að ESB þannig ,að ekki var ástæða til þess að efna til upphlaups út af því máli. Stærsta upphlaupið var þó vegna Icesave málsins en þar var ágreiningur svo mikill,að Ögmundur Jónasson þá heilbrigðisráðherra,sagði af sér ráðherraembætti í mótmælaskyni við stefnu  ríkisstjórnarinnar í málinu.
Stöðug upphlaup órólegu deildarinnar í VG veikja að sjálfsögðu ríkisstjórnina.Eðlilegra væri að að leysa ágreiningsmál stjórnarflokkannan innan stjórnarflokkanna í stað þess að bera þau alltaf á torg.En engu er líkara en VG kunni ekki að vera í ríkisstjórn. VG virðist halda,að flokkurinn geti bæði verið með og móti ríkisstjórninni. Það gengur ekki til lengdar.
Órólega deildin í VG hefur lagt mikla áherslu á að rifta samningnum við Magma um kaup á meirihluta í HS Orku.Sagt er,að samningurinn sé ógildur, þar eð um "skúffufyrirtæki" hafi verið að ræða í Svíþjóð,sem keypt hafi hlutinn í HS Orku. Ég tel að vísu að  fyrirtækið í Svíþjóð sé löglegur lögaðili og að ekkert sé í lögum sem skyldi félagið í Svíþjóð til  þess að hafa aðra starfsemi með höndum  en eignarhald.En ef rannsókn ríkisstjórnarinnar leiðir í ljós,að samningurinn við sænska félagið sé ólöglegt þá telst samningurinn ógildur og verður felldur úr gildi.En fari svo  tekur Glitnir eða kröfuhafar félagsins við HS Orku á ný en þar er einnig um útlendinga að ræða. Það verður því farið úr öskunni í eldinn.Órólega deildin í VG gerði litlar athugasemdir þegar samningur Magma var gerður við HS Orku í sumar.Upphlaupið hófst ekki fyrr en að samningsgerð lokinni.
Upphlaup órólegu deildar VG á flokksráðsfundi  vegna ESB umsóknar er enn undarlegra.Steingrímur J.Sigfússon,formaður VG,tók það skýrt fram þegar ríkisstjórnin var mynduð,að það væri gott að fá að vita hvað í boði væri hjá ESB  og þess vegna hefði VG fallist á,að sótt yrði um aðild að sambandinu.Síðan  yrði málið lagt undir þjóðaratkvæðagreiðslu og þjóðin látin skera úr um það hvort Ísland ætti að ganga í ESB.En hvers vegnaa er órólega deildin í VG þá að efna til upphlaups um þetta mál,sem flokkurinn var búinn að semja við Samfylkinguna um. Málið er alveg skýrt í stjórnarsáttmálanum.Það er brot á stjórnarsáttmálanum,ef einstakir þingmenn VG samþykkja að draga eigi umsókn um aðild að ESB til baka.Icesave málið er eitt málið,sem  mikill ágreiningur er um innan VG.Ögmundur Jónasson hefur verið fremstur í flokki andstæðinga stefnu stjóórnarinnar í málinu.Margir telja nauðsynlegt að veita honum sæti í ríkisstjórninni á ný  og að þá sé líklegra að unnt verði að leysa ágreining um Icesave innan ríkisstjórnarinnar.Ef til vill er það rétt. Raunar tel ég,að Ögmundur hefði aldrei átt að segja sig úr stjórninni.Það voru mstök,að hann skyldi  fara úr stjórninni.
Órólega deildin í VG   verður að gera upp við sig hvort hún ætlar að styðja stjórnina eða ekki.Samfylkingin getur misst þolinmæðina, ef þessi stöðugu upphlaup halda áfram.Ríkisstjórnin verður ekki starfhæf,ef einhverjir þingmenn VG eru stöðugt að l´æysa því yfir,að þeir hætti að styðja stjórnina ef þeir fái ekki þessu og þessu framgengt.Slík vinnubrögð ganga ekki áfram.
Björgvin Guðmundsson

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband