Jóhannes ekki lengur aðili að Bónus

Jóhannes Jónsson, kaupmaður, hefur fullan hug á að gera tilboð í Haga og þar með eignast Bónus aftur. Fyrr í dag var tilkynnt að Jóhannes hefði vikið úr stjórn Haga hf. og hætt störfum og afskiptum af félaginu. Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir hagsmuni bankans og Jóhannesar ekki lengur fara saman.

Í samkomulagi Jóhannesar og bankans felst meðal annars, að Jóhannes kaupir hlut Haga í SMS, sem rekur matvörubúðir í Færeyjum. Einnig kaupir Jóhannes hluta af sérvörusviði Haga. Með þessum samningi lýkur aðkomu Jóhannesar að rekstri Haga og þar með Bónus, sem hann stofnaði ásamt fjölskyldu sinni fyrir rúmum tuttugu árum og hefur rekið óslitið síðan.

,,Fyrir 21 ári varð til sú hugmynd að opna lágvöruverslun undir nafni Bónuss. Frá fyrsta degi hefur Bónus boðið lægsta vöruverð á Íslandi og svo er enn. Með tilkomu Bónus lækkaði vöruverð á landinu verulega og Bónus hefur haldið fast við þá stefnu að bjóða sama verð um land allt. Bónus var byggð á hugmyndafræði og þekkingu sem við feðgar höfðum þróað með okkur um skeið fyrir opnun fyrstu verslunarinnar," segir Jóhannes í tilkynningu.


Hann segir að Bónus hafi alla tíð verið vel rekið félag og staði við allar sínar skuldbindingar. „Það er sérstök tilfinning að þurfa að kveðja Bónus og ég segði ósatt, ef ég segðist ánægður með þá stöðu."

Jóhannes kveður fyrirtækið og starfsfólk þess með söknuði.

„Arion banki hefur tilkynnt mér að félagið fari nú í söluferli. Ég hef fullan hug á að gera tilboð í félagið og þar með eignast Bónus aftur," segir Jóhannes.(visir.is)

Það er mikil eftirsjá af Jóhannesi úr Bónus. Hann hefur lyft Grettististaki með stofnun og rekstri Bónus og hefur gert meira en nokkur annar hér á landi til þess að lækka vöruverð. Hætt er við því að vöruverð hækki fljótlega hjá Bónus,ef fyrirtækið lendir í höndum nýrra aðila.

 

Björgvin Guðmundsson


  •  
    •  


    « Síðasta færsla | Næsta færsla »

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband