6,8% samdráttur landsframleiðslu 2009

Landsframleiðsla dróst saman að raungildi um 6,8% samkvæmt endurskoðuðum tölum Hagstofunnar yfir þjóðhagsreikninga á árinu 2009. Í áætlun frá því í mars síðastliðnum var talið að samdrátturinn á árinu 2009 hafi numið 6,5%. Þessi samdráttur varð eftir samfelldan hagvöxt frá og með árinu 1993 og er samdrátturinn sá mesti sem mælst hefur frá því að gerð þjóðhagsreikninga hófst á Íslandi árið 1945. Hagvöxtur á árinu 2008 er talinn hafa numið 1%.

Samdráttur landsframleiðslu á liðnu ári kemur fram í miklum samdrætti þjóðarútgjalda, 20,9%. Samdráttur varð í öllum þáttum þjóðarútgjalda, einkaneysla dróst saman um 16%, samneysla um 1,7% og fjárfesting um 50,9%. Aftur á móti jókst útflutningur um 7,4% á sama tíma og innflutningur dróst saman um 24,1%. Þessi þróun olli því að verulegur afgangur varð af vöru- og þjónustuviðskiptum á árinu 2009, 132 milljarðar króna, borið saman við 42 milljarða króna halla árið áður. Þessi mikli bati varð til þess að samdráttur landsframleiðslu varð mun minni en nam samdrætti þjóðarútgjalda.(Hagstofan)

Samdráttur landsframleiðslu er gífurlegur og stafar að sjálfsögðu af hruni efnahagslífsins vegna bankahrunsins.Hins vegar jókst úitflutningur um 7,4% en innflutningur minnkaði um 24,1%.Það er jákvætt.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband