Miðvikudagur, 8. september 2010
Þráinn genginn í VG
Þráinn Bertelsson sem kjörinn var á þing fyrir Borgarahreyfinguna en hefur verið utan flokka síðustu misseri hefur gengið til liðs við Vinstrihreyfinguna - grænt framboð. Þetta var tilkynnt við upphaf þingfundar í morgun. Ekki hefur náðst í Þráinn í dag.
Í tilkynningu frá þingflokki VG er Þráinn boðinn velkominn í hóp þingmanna flokksins og fagnar flokkurinn liðsstyrknum sem honum fylgir.(visir.is)
Það er fengur að því fyrir VG að fá Þráinn Bertelson til liðs við sig. Meirihluti ríkisstjórnarinnar eykst einnig við þetta. Að vísu hefur Þráinn oft greitt atkvæði með ríkisstjórninni.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.