Þriðjudagur, 28. september 2010
Jóhanna: Miður,að Geir hafi verið ákærður
Mér þykir það miður að Geir H. Haarde hafi verið ákærður og fari fyrir landsdóm. Mér þykir það mjög miður því mér þykir ekkert tilefni til þess," sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í viðtali í útvarpsfréttum Ríkisútvarpsins.
Hún er ósátt við að fyrrum kollegi hennar, Geir, hafi verið ákærður fyrir afglöp í starfi.
Sjálf sagðist hún hafa kosið eftir sinni sannfæringu. Sú sannfæring hafi ávallt verið sú sama; hún greiddi atkvæði gegn öllum ákærum.(visir.is)
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.