Föstudagur, 1. október 2010
Afkoma ríkissjóðs mun betri en samkvæmt áætlunum
Afkoma ríkissjóðs á fyrstu átta mánuðum ársins reyndist töluvert betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Tekjur reyndust 25,8 milljörðum kr. meiri en í fyrra á meðan gjöldin jukust um 7,6 milljarða kr. milli ára.
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu átta mánuði ársins 2010 liggur nú fyrir og er birt á vefsíðu stjórnaráðsins.
Þar segir að handbært fé frá rekstri var neikvætt um 65,2 milljarða kr. en var neikvætt um 78,7 milljarða kr. á sama tímabili 2009.
Þetta er mun betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé frá rekstri yrði neikvætt um 90,1 milljarð kr.(visir.is)
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.