Fimmtudagur, 7. október 2010
Vill greiða Landsbankanum 250 milljarða fyrir Iceland foods.Færi upp í Icesave
Erlendur fjárfestingasjóður vill bjóða 1,4 milljarða punda, jafnvirði 250 milljarða króna, í hlut Landsbankans í Iceland Foods, en þetta eru peningar sem eiga að fara upp í Icesave. Skilanefnd bankans hafnaði tilboði frá Malcolm Walker upp á milljarð punda.
Fyrir fjórum mánuðum síðan barst skilanefnd Landsbankans tilboð í 67 prósenta hlut sinn í bresku matvöruverslanakeðjunni Iceland Foods og var tilboðinu synjað, að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag. Sá sem gerði tilboðið er Malcolm Walker, forstjóri og stofnandi fyrirtækisins. Þetta var jafnframt staðfest í tilkynningu af skilanefnd Landsbankans í dag.
Iceland Foods var í eigu Baugs og eignarhaldsfélagsins Styttu, bréfin voru veðsett Landsbankanum og gekk skilanefndin að eignunum þegar fyrirtækin fóru í þrot. Um er að ræða langverðmætustu eign skilanefndar Landsbankans. Mikill viðsnúningur varð á rekstrinum eftir að Malcolm Walker settist aftur í forstjórastólinn að áeggjan Baugs árið 2005. Bara á síðasta ári skilaði félagið 135 milljóna punda hagnaði, jafnvirði 23 milljarða króna.
Samkvæmt heimildum fréttastofu er annað tilboð að detta inn á borð skilanefndarinnar. Því erlendur fjárfestingarsjóður (e. investment fund) vill bjóða 1,4 milljarða punda í hlutinn í Iceland Foods. Þetta jafngildir 246 milljörðum króna á núverandi gengi. Nafnið á sjóðnum fæst hins vegar ekki uppgefið. Þá hafa fleiri fyrirtæki sýnt Iceland áhuga.
Lárentsínus Kristjánsson, formaður skilanefndar Landsbankans, var ekki í aðstöðu til að veita fréttastofu sjónvarpsviðtal í dag en sagði að skilanefndin hefði orðið vör við mikinn áhuga á Iceland Foods. Ég tjái mig ekki um einstaka tilboð, hins vegar er alveg klárt að öll tilboð í eignir bankans eru skoðuð. Hins vegar þarf að gæta þess að beita þeim aðferðum við sölu, sérstaklega svona verðmætra eigna, sem eru til þess fallnar að tryggja að sem hæst verð fáist fyrir eignirnar og að sem flestir áhugasamir komi að slíku ferli," segir Lárentsínus.
Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa samskipti skilanefndarinnar og Walkers verið stirð því Walker vildi í fyrstu ekki afhenda hlutabréfin í Iceland Foods sem áður tilheyrðu eignarhaldsfélaginu Styttu. Voru bréfin ekki afhent fyrr en Walker var gerð grein fyrir því að samskipti við hann yrðu í frostmarki þangað til hann afhenti bréfin og varð hann við því. Lárentsínus segir að samskiptin við Walker séu á góðum nótum í dag. Samstarfið hefur verið með ágætum þótt það sé ábyggilega ekki óskastaða að vera mjög lengi að eiga fyrirtæki þar sem tæp 70 prósenta eignarhlutur er í eigu íslensks banka sem er í slitaferli," segir Lárentsínus. (visir.is)
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.