Stækkun álversins í Straumsvík skapar 1300 ársverk á framkvæmdatíma

Í dag undirritaði Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, og Rannveig Rist, forstjóri fyrir hönd Alcan á Íslandi hf., samning sem tengist áformum fyrirtækisins um stækkun og endurbyggingu álversins í Straumsvík . Samtals er um 86 milljarða króna fjárfestingu og um 1300 ársverk á framkvæmdatímanum að ræða.

Framleiðsluaukningin í Straumsvík og breytingar vegna nýrra afurða álversins er stærsta einstaka fjárfestingin í atvinnuuppbyggingu frá falli fjármálakerfisins. Henni tengist líka stór fjárfesting Landsvirkjunar við Búðarhálsvirkjun.

Í tilkynningu segir að sú fjárfesting sem búið er að tilkynna um vegna framleiðsluaukningar álversins í Straumsvík og nýrra og verðmætari afurða, með breytingum á framleiðslulínunni, nemur nærri 60 milljörðum króna og kallar á 620 ársverk á framkvæmdatímanum. Áætla má að framleiðsla og útflutningur muni aukast um tæplega 40 þúsund tonn auk þess sem afurðir álversins verða verðmætari.

Til að mæta orkuþörfinni fyrir þetta verkefni er Landsvirkjun að hefja framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun. Áætlanir gera ráð fyrir að heildarfjárfesting vegna Búðarhálsvirkjunar muni nema um 26 milljörðum króna og að 600-700 ársverk skapist á byggingartíma. Samtals er því um 86 milljarða króna fjárfestingu og um 1300 ársverk á framkvæmdatímanum að ræða.

Með nýjum raforkusamningi sem undirritaður var 15. júní sl., milli Alcan og Landsvirkjunar, var annars vegar endursamið um verð á allri núverandi orkusölu til álversins og hins vegar samið um afhendingu á viðbótar orku (75 MW) vegna áætlaðrar framleiðsluaukningar álversins. Hinn nýi raforkusamningur kemur alfarið í stað eldri raforkusamnings milli sömu aðila en sá síðarnefndi er fylgiskjal með aðalsamningnum frá 1966.

Með þeim viðaukasamningi við aðalsamninginn sem undirritaður var í dag eru gerðar nauðsynlegar breytingar á aðalsamningnum, þannig að unnt sé að líta á aðalsamninginn frá 1966 og hinn nýja raforkusamning sem tvo sjálfstæða og ótengda samninga. Í framhaldi af undirritun hins áttunda viðaukasamnings verður hann lagður fyrir Alþingi til að veita honum lagagildi, eins og gert var á sínum tíma við aðalsamninginn frá 1966 og þá sjö viðauka sem gerðir hafa verið við hann. (visir.is)

Það er fagnaðarefni,að ákveðin skuli hafa verið stækkun álversins í Straumsvík og með henni sköpuð mörg ný störf.Iðnaðarráðherra á skilið þakkir fyrir sinn hlut í málinu.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband