Fimmtudagur, 14. október 2010
Hreyfingin vill fund með forseta um neyðarstjórn
Þingmenn Hreyfingarinnar vilja að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segi af sér embætti og forseti Íslands kanni hvort vilji sé fyrir því á meðal þingmanna að hann skipi nýja stjórn. Reynist ekki þingmeirihluti fyrir því að verja slíka neyðarstjórn vantrausti muni forseti boða til alþingiskosninga.
Verði hins vegar meirihluti í þinginu fyrir skipan nýrrar stjórnar muni forseti Íslands gera tillögu að neyðarstjórn. Þingmenn Hreyfingarinnar telja að tillaga forseta Íslands geti annað hvort falist í uppástungu að forsætisráðherra sem velji sér samráðherra eða tillögu að öllum ráðherrum slíkrar ríkisstjórnar. Þeir vilja svo að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um tillögu forseta Íslands að neyðarstjórn. Kosið verði um neyðarstjórnina í heild sinni. Verði neyðarstjórninni hafnað þá verði boðað til alþingiskosninga.
Þingmenn Hreyfingarinnar hafa sent forseta Íslands þessa tillögu. Þeir segja í yfirlýsingu til fjölmiðla að tillagan sé lögð fram vegna þess að þeim þyki einsýnt að hvorki innan ríkisstjórnarinnar né stjórnarflokkanna ríki einhugur né raunverulegur vilji til almennra aðgerða í þágu heimilanna. Tíminn sé á þrotum og samfélagið geti ekki verið í biðstöðu á meðan stjórnvöld og fulltrúar peningaaflanna koma sér saman um að hve litlu leyti þau komist upp með að bæta almenningi þær búsifjar sem þessir sömu aðilar hafi átt stóran þátt í að skapa eða hefðu getað fyrirbyggt. (visir.is)
Þetta er furðulegt útspil hjá Hreyfingunni. Það er ljóst,að hún kann ekki til verka. Ekki er gert ráð fyrir því að þingmenn hafi beint samband við forseta Íslands ef þeir vilja koma ríkisstjórn frá.Þeir eiga að flytja vantraust á stjórnina,ef þeir vilja fella hana.Ríkisstjórnin þarf ekki að segja af sér nema hún missi meirihlutann á alþingi og forsetinn getur ekki komið stjórninni frá á meðan hún hefur þingmeirihluta. Þetta á hreyfingin að vita. En sennilega er þetta fyrst og fremst áróðursbragð hjá Hreyfingunni.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:44 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.