Siðlaust að skerða lífeyrissparnað fólks

 

Það er rangt að ASÍ hafi brugðið fæti fyrir almenna lækkun skulda, sagði Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, við upphaf ársfundar sambandsins i morgun.

„Ég vil leyfa mér að ítreka það enn einu sinni, að þó okkar barátta hafi fyrst og fremst snúist um að hjálpa þeim sem lentu í mestum vanda í efnahagshruninu, þeirra sem eru að missa heimili sín, er það einfaldlega rangt að við höfum brugðið fæti fyrir almenna lækkun skulda allra óháð því hvort þeir þurfi á því að halda eða ekki," sagði Gylfi. Hins vegar þyrftu þeir sem hafi sett slíkar tillögur á oddinn að bera ábyrgð á því að finna haldbærar, lögmætar og siðlegar leiðir til að fjármagna slíka aðgerð.

„Hitt er rétt að ASÍ hefur algerlega hafnað því að almennt launafólk og elli- og örorkulífeyrisþegar úr okkar röðum verði látið bera verulegan hluta þessa kostnaðar með því að taka lífeyrissparnað þess ófrjálsri hendi. Slíkt er ekki bara ólögmætt heldur einnig og ekki síður algerlega siðlaust og ég get alveg fullvissað ykkur um það, að þetta verður ekki gert á minni vakt!," segir Gylfi.

Ég er sammála forseta ASÍ.Það er algerlega siðlaust að ætla að skerða lífeyrissparnað eldri borgara og öryrkja svo unnt sé að lækka allar skuldir jafnt. Það verður að finna aðra leið.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband