Atvinnulausir fá jólauppbót

Atvinnulausir sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins fá eingreiðslu í desember samkvæmt tillögu Guðbjarts Hannessonar, félags- og tryggingamálaráðherra, sem ríkisstjórnin samþykkti í gærmorgun. Full uppbót er 44.857 krónur en greiðsla hvers og eins reiknast í hlutfalli við rétt hans til atvinnuleysisbóta árið 2010.

Í umfjöllun um málið á vefsíðu stjórnarráðsins segir að uppbótin verður greidd þeim sem hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember-5. desember á þessu ári og ræðst heildarfjárhæðin af fjölda daga sem viðkomandi hefur verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun.

Þeir sem hafa verið skráðir án atvinnu í samtals tíu mánuði árið 2010 og eru að fullu tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins fá óskerta eingreiðslu, samtals 44.857 krónur. Þeir sem hafa ekki verið tryggðir að fullu, heldur hlutfallslega innan atvinnuleysisbótakerfisins, fá greidda eingreiðslu í samræmi við tryggingarhlutfall sitt. Sama máli gegnir um þá sem eru að fullu tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins en hafa aðeins verið hluta ársins án atvinnu.

Eingreiðsla miðað við óskert tryggingarhlutfall verður aldrei lægri en 11.214 krónur og getur eingreiðsla miðað við skert tryggingarhlutfall að lágmarki numið fjórðungi þeirrar fjárhæðar.

Vinnumálastofnun annast útborgun eingreiðslnanna og verða þær greiddar út í síðasta lagi 31. desember næstkomandi. Ekki þarf að sækja um eingreiðslu.

Gert er ráð fyrir að eingreiðsla til atvinnuleitenda auki útgjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs um tæpar 280 milljónir króna. Stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs samþykkti tillögu um eingreiðslu til atvinnuleitenda samhljóða. (visir.is)

Það er jákvætt,að atvinnulausir skuli fá jólauppbót. Ekki veitir þeim af því atvinnuleysisbætur eru mjög lágar og duga ekki fyrir öllum útgjöldum.

 

Björgvin Guðmkundsson





« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband