Laugardagur, 4. desember 2010
Samfylkingin ræðir umbótatillögur í dag
Skýrsla og tillögur umbótanefndar Samfylkingarinnar eru meginefni flokksstjórnarfundar Samfylkingarinnar sem fram fer á Hótel Loftleiðum í dag.
Flokksstjórn ákvað að stofna nefndina í apríl en henni var ætlað að leiða umræður og skoðanaskipti um störf, stefnu, innri starfshætti og ábyrgð Samfylkingarinnar í aðdraganda bankahrunsins. Tillögur umbótanefndarinnar verða kynntar í upphafi fundarins af verkstjórn nefndarinnar, en flokksstjórnarfundurinn markar upphafið að meðferð tillagnanna innan flokksins.
Jóhanna Sigurðardóttur, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, setur fundinn klukkan 11 og í kjölfarið tekur Dagur B. Eggertsson, varaformaður flokksins, til máls og fer yfir næstu skref í umbótastarfi flokksins. Að því loknu mun verkstjórn umbótanefndar, þau Ásgeir Beinteinsson, Hólmfríður Sveinsdóttir, Jón Ólafsson og Kolbrún Benediktsdóttir, kynna tillögur nefndarinnar.
Eftir hádegishlé verður unnið í 10 manna hópum við hringborð þar sem leitað verður svara við því hvernig best megi tryggja vandaða meðferð tillagna umbótanefndar. Að því loknu flytur formaður flokksins ræðu sem ber yfirskriftina Betri stjórnmál - ábyrgð Samfylkingarinnar. Síðan taka við almennar umræður.(visir.is)
Umbótanefnd Samfylkingarinnar hefur haft rúman tíma til starfa og hefur nefndin safnað inn tillögum frá ýmsum flokkssamtökum. Spurt er hvað megi og þurfi að gera til þess að bæta flokksstarfið,m.a. með hliðsjón af athugasemdum rannsóknarnefndar alþingis.Umbótanefndin gefur skýrslu í dag.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.