Mánudagur, 24. janúar 2011
Munu stjórnvöld liðka til fyrir kjarasamningum?
Í dag munu Samtök atvinnulífsins funda með samninganefnd Alþyðusambands Íslands vegna komandi kjarasamninga. Á fundinum mun væntanlega skýrast hvort og með hvaða hætti ríkisstjórnin er tilbúin að koma að gerð nýrra kjarasamninga.
Þetta kemur fram á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins. Þar segir að alvarleg staða er nú í atvinnumálum landsmanna en um 14 þúsund eru á atvinnuleysisskrá og útlit fyrir að þeim fari fjölgandi ef ekki verður gripið til róttækra aðgerða.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur bent á að það sé eitt helsta verkefni Íslendinga framundan að kveða atvinnuleysið niður og undir það taka Samtök atvinnulífsins sem vilja hefja nýja atvinnusókn svo hægt sé að vinna til baka tapaðan kaupmátt og lífskjör þjóðarinnar.
Atvinnuleysi á Suðurnesjum er mikið, þar voru 1.553 atvinnulausir um áramótin og hæsta hutfallslega atvinnuleysið á landinu eða 13,1% á meðan það var 8% á landsvísu. Á sama tíma blasa fjölmörg spennandi atvinnutækifæri við á Suðurnesjum sem verður að nýta.(visir.is)
Mikillæ ágreiningur er milli aðila vinnumarkaðarins um það hvernig standa eigi að nýjum kjarasamningum.SA vill veita litlar kauphækkanir og semja til 3ja ára.ASÍ vill meiri kauphækkanir,ca. 200 þús. í mánaðarkaup á mánuði. Ef ekki fást verulegar kauphækkanir vill ASÍ aðeins semja til skamms tíma,sennilega til næsta hausts.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:05 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.