Þriðjudagur, 25. janúar 2011
Skuldatryggingarálag Íslands lækkar
Skuldatryggingaálag Íslands stendur nú í 258 punktum og hefur það snarlækkað í þessum mánuði en það stóð hæst í 366 punktum eftir áramótin.
Álag dagsins í 258 punktum kemur fram á vefsíðunni keldan.is sem aftur byggir á gögnum frá Bloomberg og CMA gagnaveitunni.
Ísland var um tíma með betra skuldatryggingaálag en Spánn en það hefur nú breyst. Álagið á Spán mælist nú 253 punktar samkvæmt Markit iTraxx vísitölunni og hefur lækkað um 94 punkta á liðnum mánuði.(visir.is)
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:21 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.