Fimmtudagur, 24. febrúar 2011
Ekki kosið á ný til stjórnlagaþings.
Fólkið sem var kosið til þess að sitja á stjórnlagaþingi mun skipa sérstakt stjórnlagaráð sem verður ráðgefandi við Alþingi um breytingar á stjórnarskránni. Þetta var ákveðið í dag. Stjórnlagaráðið mun vinna eftir sömu lögum sem sett voru um stjórnlagaþing og munu skila niðurstöðum fyrir lok júní.
Eins og alkunna er var kosið til stjórnlagaþings í lok nóvember. Kosningarnar voru aftur á móti dæmdar ógildar. Eftir það lék vafi á því hvort kjósa ætti að nýju til stjórnlagaþingsins eða vinna úr málinu með öðrum hætti. Nú liggur sem sagt fyrir að ekki verður kosið að nýju.(visir.is)
Ég er sáttur við þessa niðurstöðu. Þeir sem kosnir voru til stjórnlagaþings munu eins og upphaflega var ákveðið vinna að gerð nýrrar stjórasrskrár í sérstöku stjórnlagaráði.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.