Föstudagur, 25. febrúar 2011
61,3% styðja Icssave samkomulagið
Ríflega sex af hverjum tíu segjast ætla að samþykkja samkomulagið sem náðst hefur við Hollendinga og Breta í Icesave-deilunni í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2.
Alls segjast 61,3 prósent þeirra sem afstöðu taka til samningsins ætla að samþykkja hann í þjóðaratkvæðagreiðslunni, en 38,7 prósent ætla að hafna honum.
Stór hluti kjósenda, um 29,6 prósent, á enn eftir að gera upp hug sinn samkvæmt könnuninni. Um 3,5 prósent sögðust ekki ætla að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Meirihluti þeirra sem segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, Samfylkinguna og Vinstri græn, yrði kosið til þings núna, ætlar að samþykkja Icesave-samninginn. Yfirgnæfandi meirihluti stuðningsmanna Framsóknarflokksins segist ætla að hafna samningnum.
Alls sögðust um 22 prósent framsóknarmanna ætla að samþykkja samninginn. Um 65 prósent stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins ætla að styðja samninginn, 76 prósent þeirra sem styðja Samfylkinguna og 89 prósent stuðningsmanna Vinstri grænna. Útreikningur á afstöðu stuðningsmanna Hreyfingarinnar er ekki tölfræðilega marktækur.
Í könnun MMR, sem gerð var dagana 20. til 21. febrúar, sögðust 57,7 prósent myndu samþykkja Icesave-samninginn en 42,3 prósent sögðust myndu hafna honum.
Hringt var í 800 manns miðvikudaginn 23. febrúar og fimmtudaginn 24. febrúar. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu og aldri.
Spurt var: Ætlar þú að samþykkja Icesave-samkomulagið eða hafna því í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu? Alls tóku 63,4 prósent afstöðu til spurningarinnar.-(visir.is)
Þetta er eiginlega meiri stuðningur við samkomulagið en ég átti von á.Spurning er hvernig mál munu þróast þegar kynning eykst og fólk kemst meira inn í málið. Ef til vill mun stuðningur þá enn aukast.
Björgvin Guðmundsson
Helstu fréttir...
Fréttir eftir mánuði
Skoða fréttir: Veldu dagsetningu Allir dagar 32Í dag24. febrúar 201123. febrúar 201122. febrúar 201121. febrúar 201120. febrúar 201119. febrúar 201118. febrúar 201117. febrúar 201116. febrúar 201115. febrúar 201114. febrúar 201113. febrúar 201112. febrúar 201111. febrúar 201110. febrúar 20119. febrúar 20118. febrúar 20117. febrúar 20116. febrúar 20115. febrúar 20114. febrúar 20113. febrúar 20112. febrúar 20111. febrúar 201131. janúar 201130. janúar 201129. janúar 201128. janúar 201127. janúar 201126. janúar 201125. janúar 2011

Fréttablaðið
Skoðun
Í labbitúr með hjálm?
Stöð2
Skoðun
Goðsögn hrundið
Veður
- Sími 512 5000
- Hafðu samband
- Starfsfólk
- Umferð
- Veftré
- Auglýsingar
- 365 Skaftahlíð 24 105 Reykjavík Sími: 512 5000
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.